Sælir félagar og gleðilegt nýtt ár.
Á morgun, fimmtudag, verður fyrsta æfing ársins og sú eina fyrir
leikinn gegn Dalvík í Austurbergi á sunnudaginn, kl. 14 nánar
tiltekið.
Verðum að ná 5á5 æfingu til að reka af okkur mestu slyðruna eftir
jólaátið. Ef einhver kemst ekki á æfingu og ekki í leikinn þá má sá
hinn sami láta vita hér í commentum.
Legg til að við tökum smá af þeirri vörn sem lagði Leikni í
síðasta leik og þá ætti ekkert lið að vera of sterkt til að við
getum lagt það að velli.
Annars eru miklar annir framundan hjá Brokey því eftir leikinn á
sunnudaginn er aðeins 6 dagar í næsta leik laugardaginn 12. janúar
og svo fimmtudaginn 20. janúar næst. 3 leikir á tveimur vikum er
ólíkt því sem var í gangi þarna fyrir áramót. 4 leikir á 4 mánuðum
er ekkert partý, og ótrúlegt en satt þá þurfti 1/4 af leikjunum að
vera á sama tíma og Manutd-Liverpool. En það var nú bara
skemmtilegra að fá Poolara heim svo þeir gátu glaðst með okkur
United mönnunum.
Allir að mæta á æfingu á morgun!
Leider
Popparinn
ps. Hjalti, hvernig gengur með profile síðuna?